DMARC, SPF og DKIM fyrir Google Workspace

Síðast yfirfarið 26. október 2026 · Kastro

Lén sem nota Google Workspace þurfa SPF-færsluna v=spf1 include:_spf.google.com ~all, DKIM-lykil sem búinn er til í Google Admin og settur inn sem TXT-færsla á google._domainkey, og DMARC-færslu á _dmarc. Byrjaðu DMARC á p=none og hertu svo í p=quarantine og loks p=reject.

1. SPF: segðu hver má senda

TXTNafn@Gildiv=spf1 include:_spf.google.com ~all

@ þýðir lénið sjálft. Sumir DNS-hýsingaraðilar vilja nafnreitinn tóman.

Ef aðrar þjónustur senda líka póst í ykkar nafni, bættu þeim við í sömu færslu. Það má aðeins vera ein SPF-færsla á léninu.

2. DKIM: búðu til lykil í Google Admin

  1. Í Google Admin console: Apps > Google Workspace > Gmail > Authenticate email.
  2. Veldu lénið og smelltu á „Generate new record“. Veldu 2048 bita og haltu forskeytinu google.
  3. Afritaðu TXT-gildið sem Google sýnir (það byrjar á v=DKIM1) í nýja TXT-færslu á google._domainkey.
  4. Bíddu þar til færslan hefur dreifst og smelltu svo á „Start authentication“ í Google Admin.
TXTNafngoogle._domainkeyGildi(gildið sem Google sýnir, byrjar á v=DKIM1)

Ef Gmail var nýlega virkjað getur Google þurft 24 til 72 klukkustundir áður en hægt er að búa til lykilinn, og allt að 48 klukkustundir þar til DKIM fer í gang.

3. DMARC: byrjaðu í eftirliti

p=none stöðvar engan póst. Þetta er öruggur fyrsti áfangi á meðan þú staðfestir að allur lögmætur póstur standist.

TXTNafn_dmarcGildiv=DMARC1; p=none;

4. Hertu DMARC í áföngum

Sendu prufupóst frá öllu sem sendir póst í ykkar nafni. Þegar allt berst eðlilega skaltu breyta í p=quarantine. Eftir viku eða tvær án vandræða skaltu fara í p=reject.

TXTNafn_dmarcGildiv=DMARC1; p=quarantine;
TXTNafn_dmarcGildiv=DMARC1; p=reject;

Algengar spurningar

Hvaða SPF-færslu notar Google Workspace?

v=spf1 include:_spf.google.com ~all. Ef aðrar þjónustur senda líka póst í ykkar nafni skaltu bæta þeim í sömu færslu í stað þess að búa til aðra.

Hvernig staðfesti ég að DKIM virki?

Sendu póst á Gmail-netfang hjá einhverjum öðrum (ekki sjálfum þér) og skoðaðu Authentication-Results í hausnum. Þar á að standa dkim=pass.

Af hverju virkar DKIM ekki strax?

DNS-breytingar geta tekið allt að 48 klukkustundir. Mundu líka að smella á „Start authentication“ í Google Admin eftir að færslan er komin inn.

Heimildir