Læstu léni sem sendir ekki tölvupóst
Lén sem hefur engin pósthólf og sendir engan póst má læsa með tveimur TXT-færslum: v=spf1 -all á léninu sjálfu og v=DMARC1; p=reject; á _dmarc. Þá hafna póstþjónar öllum pósti sem þykist koma frá léninu.
Færslurnar
@Gildiv=spf1 -all_dmarcGildiv=DMARC1; p=reject;@ þýðir lénið sjálft. Sumir DNS-hýsingaraðilar vilja nafnreitinn tóman.
Ef SPF- eða DMARC-færsla er þegar til skaltu skipta henni út í stað þess að bæta við annarri.
Áður en þú læsir
Gakktu úr skugga um að ekkert sendi póst í nafni lénsins: vefform, vefverslun, reikningakerfi, fréttabréf eða tæki eins og prentarar. Ef eitthvað gerir það skaltu fylgja leiðbeiningum fyrir þína póstþjónustu í staðinn.
Valfrjálst: null MX
Til að segja líka að lénið taki ekki á móti pósti má setja MX-færslu með forgangi 0 og gildinu „.“ (punktur), samkvæmt RFC 7505. Ekki allir DNS-hýsingaraðilar styðja það.
@Gildi0 .@ þýðir lénið sjálft. Sumir DNS-hýsingaraðilar vilja nafnreitinn tóman.
Algengar spurningar
Á ég að læsa lénum sem ég nota ekki fyrir póst?
Já. Svikarar velja oft ónotuð lén og gömul vörumerki því þar er engin vörn. Læsingin kostar ekkert og hefur engin áhrif ef enginn póstur er sendur.
Hvað ef ég byrja seinna að nota lénið fyrir póst?
Þá skiptir þú SPF-færslunni út fyrir færslu póstþjónustunnar, fjarlægir null MX ef þú settir hana og byrjar DMARC aftur á p=none.