DMARC, SPF og DKIM fyrir Microsoft 365
Til að verja lén sem notar Microsoft 365 þarf þrennt: SPF-færsluna v=spf1 include:spf.protection.outlook.com -all, tvær DKIM CNAME-færslur (selector1 og selector2) sem Microsoft Defender gefur upp, og DMARC-færslu á _dmarc. Byrjaðu DMARC á p=none og hertu svo í p=quarantine og loks p=reject þegar allur póstur stenst.
1. SPF: segðu hver má senda
Microsoft mælir með -all fyrir lén sem senda aðeins í gegnum Microsoft 365, þegar DKIM og DMARC eru líka sett upp.
@Gildiv=spf1 include:spf.protection.outlook.com -all@ þýðir lénið sjálft. Sumir DNS-hýsingaraðilar vilja nafnreitinn tóman.
Ef aðrar þjónustur senda líka póst í ykkar nafni, til dæmis reikningakerfi eða fréttabréf, bættu þeim við í sömu færslu. Það má aðeins vera ein SPF-færsla á léninu.
2. DKIM: kveiktu á undirritun
- Opnaðu security.microsoft.com/authentication og veldu DKIM flipann.
- Smelltu á lénið. Microsoft sýnir tvær CNAME-færslur sem þarf að bæta við.
- Bættu báðum við hjá DNS-hýsingaraðilanum. Settu aðeins host-hlutann í nafnreitinn, til dæmis selector1._domainkey.
- Farðu aftur í Defender og kveiktu á „Sign messages for this domain with DKIM signatures“.
selector1._domainkeyGildi(gildið sem Microsoft sýnir)selector2._domainkeyGildi(gildið sem Microsoft sýnir)Gildin eru einstök fyrir hvert lén, svo afritaðu þau beint úr Defender. Ef DNS er hjá Cloudflare þarf að stilla færslurnar á „DNS only“.
3. DMARC: byrjaðu í eftirliti
p=none stöðvar engan póst. Þetta er öruggur fyrsti áfangi á meðan þú staðfestir að allur lögmætur póstur standist.
_dmarcGildiv=DMARC1; p=none;4. Hertu DMARC í áföngum
Sendu prufupóst frá öllu sem sendir póst í ykkar nafni: venjulegum pósti, reikningakerfi, vefverslun, fréttabréfum og vefformum. Þegar allt berst eðlilega skaltu breyta í p=quarantine. Eftir viku eða tvær án vandræða skaltu fara í p=reject.
_dmarcGildiv=DMARC1; p=quarantine;_dmarcGildiv=DMARC1; p=reject;Algengar spurningar
Á ég að nota -all eða ~all fyrir Microsoft 365?
Microsoft mælir með -all þegar DKIM og DMARC eru líka sett upp, því þá getur DMARC brugðist við pósti sem stenst ekki SPF og er án DKIM-undirskriftar.
Af hverju finnur Microsoft ekki CNAME-færslurnar?
Algengast er að allt nafnið hafi verið sett í host-reitinn svo lénið endurtekur sig, eða að Cloudflare proxy sé á. Notaðu aðeins selector1._domainkey og selector2._domainkey og stilltu á DNS only. DNS-breytingar geta tekið allt að 48 klukkustundir.
Hversu langan tíma tekur þetta?
Færslurnar sjálfar taka nokkrar mínútur. Gefðu þér síðan viku eða tvær á p=none og p=quarantine áður en þú ferð í p=reject.